Aðilar og hópar geta sótt um að sjá um gestamálstofu eða vinnustofu á ráðstefnunni.

Fyrirkomulag

  • Umsækjandi sér þá um að setja saman heila málsstofu eða vinnustofu sem samanstendur af ca. 4 erindum.
  • Tímalengd má ekki fara yfir 60 mín.
  • Umsækjandi skipar einnig fundarstjóra fyrir málstofuna.
  • Ágripunum bera að skila í gegnum heimasíðu ráðstefnunnar og merkja við að sótt hafi verið um getamálstofu/vinnustofu.
  • Ágripin fara í yfirlestur líkt og önnur innsend ágrip.
  • Ráðstefnunefndin sker úr um hvaða gestamálstofur/vinnustofur verða valdar fyrir ráðstefnuna. 

Óskað er eftir tillögum fyrir 22. mars.
Vinsamlega sendið tillögur á netfangið asavala@hi.is

Dæmi um gestamálsofur á fyrri ráðstefnum

  • Vinnustofa undir stjórn Kristjáns Erlendssonar, formanns Vísindasiðanefndar: Að vita eða vita ekki! Hvenær á að tjá þátttakendum í vísindarannsóknum nýjar heilsufarsupplýsingar um þá sjálfa
  • Gestamálstofa undir stjórn Félags lýðheilsufræðinga og Faralds- og líftölfræðifélagsins: Samfélag, umhverfi og lýðheilsa – Uppfærslan
  • Gestamálstofa á undir stjórn aðila á Sýklafræðideild Landspítala og Barnaspítala Hringsins: Árangur pneumókokkabólusetningar á Íslandi
  • Gestamálstofa undir stjórn Félags lýðheilsufræðinga og Faralds- og líftölfræðifélagsins: Sykurneysla Íslendinga – Lýðheilsuógn? 
Scroll to Top

Á þessu vefsvæði eru notaðar vafrakökur.