Aðalhöfundur: Erla Kolbrún Svavarsdóttir
Vinnustaður eða stofnun: Heilbrigðisvísndasvið, Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Meðhöfundar, stofnun eða fyrirtæki:
Anna Ólafía Sigurðardóttir, Landspítali Háskólasjúkrahús. Henný Hraunfjörð, Landspítali Háskólasjúkrahús, Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Inngangur: Fjölskylduhjúkrun tekur mið af einstaklingunum í fjölskyldum- og samspili þeirra á milli, þ.e. einstaklings-og fjölskyldumiðaðri umönnun. Að hafa fjölskyldur með á sama tíma og hjúkrunarþjónusta er veitt til einstaklinga er grunnurinn að heildrænni hjúkrunarþjónustu. Alþjóðasamtök fjölskylduhjúkrunarfræðinga hafa lagt áherslu á mikilvægi fjölskyldunnar í námskrám hjúkrunarfræðinema bæði í grunnnámi-og í framhaldsnámi. Þar er sérstaklega tilgreint að meta þurfi sambönd og samskipti fjölskyldumeðlima og áætlanir gerðar um hjúkrunarþjónustu og mat framkvæmt á umönnun og inngripum hjúkrunarfræðinga.
Á tímum COVID-19 hefur mikil samfélagsleg umræða verið um mikilvægi fjölskyldustuðnings. Lítið er hins vegar vitað um mat nema í BSc námi eða í framhaldsnámi á færni þeirra í fjölskylduhjúkrun eða á viðhorfum til fjölskyldumiðaðrar heilbrigðisþjónustu. Tilgangur þessarar rannsóknarinnar var að kanna viðhorf auk hæfni og færni í fjölskylduhjúkrun í nýrri námsskrá á timum COVID-19.
Efniviður: Öllum nemendum í BSc- og framhaldsnámi við Hjúkrunarfræðideild HÍ var boðin þátttaka í fyrstu bylgju COVID-19 heimsfaraldursins í mars-april 2020. Alls tóku 109 nemendur þátt (34% svarhlutfall).
Niðurstöður: Megin niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að viðhorf nemenda í framhaldsnámi voru marktækt jákvæðari til fjölskyldumiðaðrar þjónustu samanborið við nemenda í grunnnámi. Nemendur í framhaldsnámi mátu einnig hæfni þeirra og færni marktækt betri til að sinna fjölskyldum samanborið við nemendur í grunnnámi.
Ályktarnir: Kennsla í fjölskylduhjúkrun þarf að byggja á fræðunum og á færniþjálfun undir leiðbeiningu sérfræðinga í hjúkrun, þannig að hægt sé að næra með markvissum hætti heilsu fjölskyldumeðlima og sambönd þeirra. Nýverið var námsskrá í grunnnámi í hjúkrunarfræði við HÍ breytt þar sem aukin áhersla var lögð á fjölskylduhjúkrun í námsskránni. Frekari niðurstöður verða kynntar og tillögur að framtíðarrannsóknum ræddar.