Aðalhöfundur: Telma Huld Ragnarsdóttir
Vinnustaður eða stofnun: Landspítali
Meðhöfundar, stofnun eða fyrirtæki:
Margrét Kristjánsdóttir, Landspítali. Gísli Gíslason, Háskóli Íslands. Vicente S. B. Ingelmo, Landspítali. Ólafur Helgi Samúelsson, Landspítali. Margrét Ólafía Tómasdóttir, Háskóli Íslands, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Runólfur Pálsson, Landspítali, Háskóli Íslands. Ólafur Skúli Indriðason, Landspítali.
Inngangur: Bráður nýrnaskaði (BNS) er alvarlegur fylgikvilli bráðra veikinda and hefur neikvæð áhrif á batahorfur. BNS hefur verið rannsakaður ítarlega hjá inniliggjandi sjúklingum en lítið er vitað um BNS utan spítala. Markmiðið með þessarri rannsókn er að skoða áhættuþætti and orsakir BNS meðal sjúklinga sem leita á bráðamóttöku (BMT).
Efniviður og aðferðir: Þetta er framsýn, tilfellamiðuð rannsókn þar sem kreatíníngildi allra sjúklinga er leituðu á BMT Landspítala voru metin með tilliti til BNS. Hér eru birtar niðurstöður tímabilanna 1. janúar til 3. mars og 19. maí til 21. september 2020. Aðra hluta ársins var gert hlé á rannsókninni vegna Covid-19. Öllum sjúklingum sem uppfylltu KDIGO–skilmerki fyrir BNS var boðin þátttaka í rannsókninni ásamt pöruðum viðmiðum (1:2). Þátttakendur undirrituðu upplýst samþykki og voru spurðir um heilsufarssögu og lyfjanotkun, þ.m.t. notkun lausasölulyfja. Hópar voru bornir saman með hefðbundnum tölfræðilegum aðferðum.
Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu voru greind 371 tilfelli af BNS, þar af tóku 316 (85%) þátt. Meðalaldur BNS-tilfella var 66,6±16,1 ár and og viðmiða 66,3±16,2 ár; 46% tilfella og viðmiða voru konur. Einstaklingar með BNS voru marktækt líklegri en viðmið til að hafa notað bólgueyðandi lyf án barkstera (BLÁB) í vikunni fyrir komu á BMT, (31,1% sbr.við 22,2%, p=0,003), einkum slík lyf keypt án lyfseðils (24,7% vs 16,2%, p=0,001). Í fjölþáttagreiningu voru marktæk tengsl við notkun BLÁB (p=0,003), uppköst (p<0,001), niðurgang (p=0,05) og sögu um sykursýki (p=0,004).
Ályktanir: Þessar frumniðurstöður benda til mikilvægs þáttar BLÁB sem keypt eru í lausasölu í myndun BNS meðal sjúklinga sem leita á BMT.