Málstofustjóri: Sigríður Zoega
13:15-13:30 „Það var engin panikk“–reynsla hjúkrunarstjórnenda af stofnun göngudeildar fyrir COVID-19 smitaða sjúklinga
13:30-13:45 Hjúkrun Covid-19 smitaðra sjúklinga í göngudeild – Eigindleg rannsókn á reynslu hjúkrunarfræðinga
13:45-14:00 Reynsla af hjúkrun á framlínu legudeildum Landspítala í fyrstu bylgju Covid-19 faraldursins
14:00-14:15 Aukin öryggiskennd í einangrun þegar heilsulæsi er betra: Mat sjúklinga með COVID-19 á Íslandi
Ágrip málstofu í stafrófsröð
Aukin öryggiskennd í einangrun þegar heilsulæsi er betra: Mat sjúklinga með COVID-19 á Íslandi
Aðalhöfundur: Brynja Ingadóttir. Í spurningakönnum sem lögð var fyrir þá sem fengu COVID-19 í fyrstu bylgju faraldursins (til 15. júní 2020) kom í ljós að öryggiskennd meðan á einangrun stóð mældist góð og heilsulæsi flestra þátttakenda var fullnægjandi. Marktæk jákvæð fylgni var á milli öryggiskenndar og heilsulæsis.
Hjúkrun Covid-19 smitaðra sjúklinga í göngudeild – Eigindleg rannsókn á reynslu hjúkrunarfræðinga
Katrín Blöndal. Greint verður frá niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar á reynslu hjúkrunarfræðinga sem unnu á Covid-19 göngudeild Landspítala í fyrstu bylgju faraldursins af því að hjúkra fullorðnum COVID-19 smituðum sjúklingum í krefjandi aðstæðum, á staðnum og í fjarhjúkrun, þar sem samskipti fóru einungis fram gegn um síma.
Reynsla af hjúkrun á framlínu legudeildum Landspítala í fyrstu bylgju Covid-19 faraldursins
Aðalhöfundur: Marianne Elisabeth Klinke.
Sjá lýsingu á gestamálstofu: Hjúkrun í Covid
Það var engin panikk – Reynsla hjúkrunarstjórnenda af stofnun göngudeildar fyrir COVID-19 smitaða sjúklinga
Helga Jónsdóttir
Sjá lýsingu á gestamálstofu: Gestamálstofa: Hjúkrun í COVID-19 faraldrinum